Bluetti Charger 2 Hraðhleðsla

kr. 79.900

BLUETTI Charger 2 – Hleður 13 sinnum hraðar frá rafgeymi bílsins! 

 

Á lager

Vörunúmer: blu-charger2 Flokkur:

Lýsing

Bluetti Charger 2 sameinar rafalinn í bílnum, ræsigeyminn, Bluetti orkubankann, sólarsellurnar, DC-miðjuna og auka rafhlöður í eitt snjallt vistkerfi. Minni fyrirhöfn, hraðari hleðsla og betri orkustýring. Aukin öryggistilfinning hvort sem þú ert á ferðinni, í útilegu eða utan raforkukerfis.

Snjöll tímasetning
Charger 2 er miðlæg orkustjórnun. Hann jafnvægisstýrir sjálfkrafa orkuflæði inn og út og getur jafnframt hlaðið kerfi ökutækisins út frá rauntímaskilyrðum og stillingum.

Hleðsla á Bluetti orkubanka
Þú hleður  BLUETTI orkubanka auðveldlega frá bílgeyminum, frá sólarsellum eða öðru BLUETTI tæki með með tvístefnu snúru.

Neyðarræsing bílsins
Ef bílarafhlaðan tæmist af einhverjum ástæðum, getur Charger 2 hlaðið hana örugglega með sólarorku eða BLUETTI orkkubanka eða stækkunarrafhlöðu (t.d. B300K) – svo þú lendir aldrei í því að vera rafmagnslaus strandaglópur á fjöllum..

Stöðug DC-orka 12/24V
Knúðu DC-tæki á meðan ekið er. Þegar vélin slekkur á sér skiptir Charger 2 sjálfkrafa yfir í aðra orkugjafa til að halda tækjum gangandi án þess að tæma bílarafhlöðuna.

Allt að 1.200 W frá ökutæki og sólarsellum
Charger 2 hleður allt að 13× hraðar en hefðbundið rafmagns bílaútak og 2× hraðar en Charger 1. Veldu einn orkugjafa eða báða í einu – án þess að skipta eða taka úr sambandi. Haltu fullri orku á ferðalaginu eða utan rafkerfis, algjörlega áhyggjulaust.

Hentar öllumr BLUETTI orkubönkum
Charger 2 er samhæfður við allar BLUETTI orkubanka.. Hann er auðveldur í uppsetningu og tilbúinn fyrir framtíðarviðbætur.

12 V / 24 V DC útgangur í gegnum DC-miðju
Allt að 600W tvíspennuafl – engir inverterar, engar flóknar lagnir. Tengdu og notaðu bílakæliskáp, ljós, viftur eða önnur 12 V/24 V tæki á einfaldan hátt. Stingdu í samband og leggðu af stað. Ath.: Krefst Anderson-millistykkissnúru fyrir tengingu við DC-borð; DC-miðja inniheldur ekki DC-borð.

Alhliða vernd
Innbyggðar öryggisvarnir, m.a. hitastýring, ofspennu-, ofstraums- og lágspennuvörn.

Hleðslugreining
Hleðsla frá rafgeymi bílsins hefst um leið og bifreið er ræst. Þegar hann  stöðvast og slökkt er á bílnum lokast fyrir hleðslu.  Þannig tryggir Charger 2 að rafgeymirinn haldist öruggur fyrir bílinn næst þegar hann er ræstur.

Samhæfður snjöllum rafölum
Samskipti við snjalla rafala með D+ merkjastuðningi fyrir mýkri og skilvirkari hleðslu.

Full stjórn
Taktu stjórn á orkunni með BLUETTI appinu. Skoðaðu stöðu kerfisins, fylgstu með orkunotkun og stýrðu öllu í rauntíma – hvar sem er. Kerfið þekkir sjálfkrafa tengda orkubanka og stillir sig fyrir hnökralausa notkun.

vörumerki

Bluetti

Þér gæti einnig líkað við…

Share